Um flókna frásagnaruppbyggingu í útvöldum íslenskum samtímaskáldsögum og tengsl þeirra við miðaldasögur
Résumé
Miðaldasögurnar bera fram hugmyndir um veruleikann sem samsvara ekki því sem nútímamenn þekkja úr daglegu lífi. Í slíkum textum birtist veruleikinn sem breiður og opinn, mótaður af veruleikastigum sem snertast og skarast. Uppbygging frásagnarinnar tengir þessi veruleikastig saman, meðal annars í gegnum ýmsum frásagnarstigum (fr. niveaux diégétiques). Með nokkrum dæmum úr skáldsögum eftir Vigdísi Grímsdóttur og Svövu Jakobsdóttur verður sýnt hvernig skáldkonurnar tvær nýta flókna frásagnaruppbyggingu til að skapa margfaldan veruleika. Athygli verður vakin á mögulegum tengslum milli nútímaforma „margfaldra heima“, frásagnarstrúktúra sem miðla þeim, og þess sem finna má í miðaldaundirtextum (fr. hypotextes). Með því að rannsaka þessa arfleifð er ætlunin að varpa nýju ljósi bæði á miðalda- og nútímafrásagnir. Fyrirlesturinn byggist á doktorsverkefni fyrirlesarans, sem ber titill „(Endur)skapaður veruleiki: viðtökur og menningaráhrif sem grundvöllur töfrafemínisma. Samanburðarrannsókn á íslenskum og rómönskamerískum frásagnarbókmenntum.“

